Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Munið!!!

Betra er að fara á kostum en taugum

seinasta blogg 2009

19. desember 2009 klukkan 23:38

Já já mín dugleg að blogga hérna! :D 


Jæja.. 2009 alveg að klárast og lítið af þessum lista þarna komið í hús!


1. enginn maður

2. hætti við kanada í bili, fór herbalife-leiðina frekar

3. Vann reyndar sjálfstætt... gerði heimasíðu fyrir gistiheimili á Flúðum, www.simnet.is/dalbaer

4. Skapaði nú ekki mikið en lærði magadans, sem mér finnst nú smá kreativt og skemmtilegt


og þannig að helmingsárángur... ekkert of slæmt.


Þarf að fara að vinna í lista fyrir 2010.. kannski ég reyni að hafa fleiri atriði á honum.


yfir og út í bili. 

fyrsta blogg 2009

04. janúar 2009 klukkan 20:20
jæja 2009 gengið í garð... og ég full af orku og eldmóð!

Er komin með ógeð á ástandinu og neikvæðninni og nenni þessu ekki lengur! Ætla mér mikið á þessu ári!

hér er úrtak:

1. Ná mér í mann
2. flytja til Kanada
3. vinna sjálfstætt
4. skapa eitthvað skemmtilegt og læra meira.


Jább... ekkert getur haldið aftur af mér! Ég stefni ótrauð áfram og er með fiðrildi í maganumLaughing

Fyrsta aðgerð í "get hitched 2009"... er að ég fór í IKEA og keypti púða fyrir 6.600 kr! 4 litla púða 50x50 cm og tvo stóra 72x 72cm og ætla að sauma töff púðaver utan um þá, enda bara ljót púðaver til utan um þessa stóru í IKEA!

Þarna sjáið þið að ég slæ tvær flugur í einu höggi, gera eitthvað smá kreativt, læra að sauma og er komin með kósý aðstöðu fyrir dvd gláp... og kannski eitthvað meir! Wink

Þetta er allt á réttri leið!!!

og svo stjörnuspáin kom skemmtilega á óvart rétt í þessum bloggskrifum:

Bogmaður:
Það er gaman þegar vel gengur og þú átt að njóta meðbyrsins því enginn hefur fært þér hann nema þú sjálfur.

Vá hvað allt er frábært!!!!

Kveðjur

Valdís... að kafna úr bartsýni og eldmóð!

Tralalalalaaaaa

24. október 2008 klukkan 01:08
Bogmaður:
Hávaðinn í kringum þig er hærri en vanalega, og þannnig viltu hafa það.
Lfið er ekki bókasafn, það er tónleikar með hljóðum fólksins.

Sammála... nema það er enginn hávaði í kringum mig, þvert á móti.

Lítið ... well eiginlega bara ekkert að gera í vinnunni og í dag vantaði 3 manneskjur.. en samt vorum við önnur 3 sett í að þrífa og skúra, og svona 3 manneskjur voru að vinna það sem bauðst.... :/

Svoleiðis er það þessa dagana. Væri fínt eiginlega að fá bara að fara heim þegar væri búin með verkin sín, ég gæti þá sloppið um hádegi og gert eitthvað meira af viti, svona einsog fara með mömmu á kaffihús eða eitthvað :)

Annars brjálaðar helgar framundan, sem er baaaaara gott mál :D :D Er að fara á Janis Joplin sýninguna í kvöld með Ernu, en pósturinn fékk smá afslátt og við ákváðum að skella okkur! Svo er Raggsterinn hennar Önnu að slá í 30 og heldur heljarteiti á laugardagskvöldið :) Svo næstu helgi eru það 2 önnur þrítugsafmæli... og helgina eftir það spilakvöld(PARTÝ) með vinnunni... oooooog helgina eftir það er það saumaklúbburinn Ljúfa Líf sem ætlar að sletta aðeins úr klaufunum :D :D

Good times ahead! Verst hvað vinnuvikan er lengi að líða, maður er byrjaður að telja á mánudegi í næstu helgi....

Jibbí jei!

12. október 2008 klukkan 15:07
Lífið er yndislegt... veit ekki af hverju.. vaknaði bara svona kát og er að henda mér í gymmið!

3 vikur liðnar af nýja lífstílnum og maður er allur að koma til.. já þetta er frábært!

Ég finn lítið fyrir "kreppunni" og er voðabjartsýn... þó soldið svartsýn inn á milli... samt 90% bjartsýn!

Vona að þetta ástand fari að lagast... þetta gengur ekki svona! Ég þarf að eiga svo mikinn pening á næsta ári!!!!

Kaupa mér íbúð og mótorhjól og ferðast til USA helst!!! :D:D:D Já ég fer með bænirnar á hverju kvöldi!!

En jæja.. ég er farin í gymmið og sundið!

Njótið dagsins!

jæja.. eitthvað til að hlakka til

30. september 2008 klukkan 00:32

STJÖRNUSPÁ

Bogmaður:

Þú kynnist nýju fólki og það er eitthvað frábært við þetta fólk. Það er eins og þú sért umkringdur uppáhalds fólkinu þínu, nema að þú þekkir það ekki enn.

Dæs...

28. september 2008 klukkan 23:57
   Viljiði blogg segjiði?

hummmm.....

viljiði vita hvað bleika ungfrúin er að bralla?

Unlucky!

Fáið ekki að vita!

yfir og út

Er verið að tala til manns?

12. september 2008 klukkan 21:52
STJÖRNUSPÁ

Bogmaður: Þú áttar þig á því í fyrsta sinn að þú ert þátttakandi í verkefni sem henar þér alls ekki.
Því fyrr sem þú losar þig, því betra


Hmmm..... jámm er byrjuð að vinna aftur hjá Póstinum... er ekkert að fíla það og þetta er frekar súrt epli að bíta en næring er nú samt í þessu... maður fær t.d. alltaf rétt laun og á réttum tíma! Og það eru nú ansi stórir plúsar við þetta núna á þessum síðustu og verstu tímum..

úff steinsofnaði áðan.. erfið og leiðinleg vika að baki... byrjaði samt vel með góðum saumó á þriðjudaginn þegar ég bauð L.L. klúbbnum, Ljúfa Líf, í hunangsbakaðar kjúklingarbringur með kús kús og svo toblerone eplakaka í desert sem var alveg to die for... og þetta rann ljúflega niður með umræðum um megranir og sniðug námskeið til að fara á og láta pína sig... Hlæjandi

Ohh hvað lífið er yndislegt!

Vona að næsta vika verði skemmtilegri samt... veit að Erna ætlar að halda saumó fyrir Pjöllurnar og ég get byrjað að fara í RÆKTINA!!!!!! OOOHHHH HVAÐ ÉG HLAKKA FEITT TIL!!!!
Brosandi (náðuð þið kaldhæðninni? Hlakka FEITT til? hahahahaha... ok held ég sé með svefngalsa.... )

Anywho... afslöppun og þvo allann þvottinn minn í kvöld... og svo er það afmæli afmæli og afmæli á morgun í Keflavík og sækja sennilega fólk upp á völl sem er búið að vera á Ítalíu í viku að dúlla sér...

Svona er nú það börnin góð!

Hvernig væri nú smá comment fyrir innlitiið?




ooo jæja :P

05. september 2008 klukkan 17:15
Bogmaður:
Allt það sem þú virkilega vilt tengist saman. Settu heilsuna í fyrsta sæti, og önnur markmið nást af sjálfu sér.
Þetta verður geggjað stuðkvöld


Skál fyrir því! Farin upp í bústað!

adios!

p.s. ekki gera neitt skemmtilegt án mín!

seint kemur blogg.. en kemur þó

27. ágúst 2008 klukkan 16:12
Já ég er alltof löt við þetta :P  En oft eru bloggfærslur að hrærast í hausnum á manni en svo gleymist bara að koma þeim á netið svo þið fáið að njóta þeirra... hummm eða eitthvað þannig


Annars fór ég í myndatöku á föstudaginn síðasta með haltrandi og kvartandi hnéið mitt og fékk svör á laugardaginn frá Boga Jóns bæklunarlækni að liðþófinn væri rifinn og hvenær ég kæmist í aðgerð hjá honum.
Ég er náttúrulega ekkert bissí þessa dagana þannig að ég komst strax á mánudaginn undir hnífinn, flott mál að skvera þessu af ef ég fengi allt í einu vinnu... og í aðgerðinni sá hann að bæði innri og ytri liðþófi væri mjög illa farinn og því alls ekki skríitð að ég væri að drepast í fætinum.



Fann þessar uppl inná Hlaup.is

"Algengustu ástæður fyrir áverkum á liðþófa eru snúningsáverkar, álag tengt röngu hlaupalagi, hopp hvers konar og mikið álag. Liðþófinn eins og aðrir vefir líkamans missa mýkt sína með auknum aldri."

Þannig að það að fara að hamast í bootcamp var kannski ekki svo góð hugmynd...

Sjáumst hress!Ullandi

Klístrað

31. júlí 2008 klukkan 01:47
Ég er varla að höndla þennan hita!!! Þetta er svakalegt!

En annars átti mamma afmæli í dag.. well eða í gær, 30 júlí... varð 46 ára frúin. Við vorum búnar að útbúa hina ýmsu gómsætu rétti og allir gestirnir mættu sem boðið var.. um 25 manns.. the usual bara.... Hlæjandi

Grímur bróðir mætti með stæl



Heiðar litli (189,5 cm) kom af skátamóti.. rauðbrúnn og með bleikt hár!!



yes yes.. very pink! Eitthver áhrif frá stóru sys kannski! :D



Balor með "fæ ég ekkert að borða" svipinn Hlæjandi



Come on.. ég er hérna bakvið sófann... THROW ME A BONE FOR GODS SAKES!



Halla og Aron keyptu þennan fallega blómvönd handa mömmu



Emil Nói var sáttur að fá pulsu með agúrku...



og þarna erum við systurnar í skugganum... gleymdum að kveikja á flassinu....



Og afmælisbarnið sjálft! 46 ára unglambið :)




Annars síðustu helgi hélt föngulegur hópur á grundarfjörð til að eiga góða stund. Og þessar skutlur mættu fyrstar og svæðið og tjölduðu fyrir liðið til að við fengum örugglega pláss! Næst nýtum við sambönd okkar í bæjarráðinu og látum skvera af VIP svæði fyrir okkur!!!



Svo kom smá rok og rigning á okkur en auðvitað var bara gaman að því....




Þangað til næst... verið stillt og prúð börnin góð Koss

Prófíll

  • Nafn: Valdísa Skvísa
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Alt muligt menneske
  • Hjúskaparstaða: makalaus
  • Um mig: say it loud!... I´m pink and I´m proud!

Auglýsing

Vissir þú...

að magi geymir næringu og meltir hugmyndir....

Könnun

Er komin jólafílingur í þig?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit